|
|
24.07.2008 00:50:47 / tímon
Vá hvað maður getur verið skrítinn, fyrst voru allir með blogg-síðu , nú eru allir með myspace-síðu nema gömlu aularnir sem nota ennþá facebook þannig að ef maður ætlar að halda kúlinu verður auðvitað að fylgja með. Nú er ég með þessa síðu síðan fyrir 2 eða 3 árum, facebook síðu síðan í gær og myspace síðu síðan áðan, flickr síðu síðan í haust og hotmail&MSN síðan sautjánhundruð og súrkál...hvað er að! En já eftir fjölda áskorana fékk ég mér facebook, þar sem Esther vinkona er í mexíkó í óákveðinn tíma neyddist ég til að fá mér svoleiðis til að fylgjast með ferðinni, nú til að geta skoðað partý myndirnar af sjálfri mér og félögunum þurfti ég að fá mér myspace já Gunnsa, Anna og Brynja here I come!...eins og Eiki sagði GRÉTAR af öllum er með myspace!!! Það er nú gaman að segja frá því að fyrr á þessu ári ákvað Eiríkur vinur minn að fá sér myspace síðu en átti í vandræðum með að finna sér URL nafn á hana því það var allt upptekið svo að síðan hans heitir www.myspace.com/thaderekkertlaust . Þegar ég frétti af því ákvað ég að ef ég myndi einhvetíman fá mér myspace síðu skildi hún heita www.myspace.com/eikitoksidastanafnid og vitið menn URLið var laust svo að síðan mín heitir það  að vísu er ekkert komið inn á hana svo ég viti því Árný Sif smíðaði hana fyrir mig, en það mun koma... hehe og já ég er farin að hanga heima hjá öðrum að blogga og búa mér til enn fleiri síður til að setja eitthvað drasl inn á þegar tölvan mín og netið virkar ekki einu sinni, vá kaldhæðni! Gott fólk, verðum nú alveg áræðanlega í bandi eftir þetta! Later on sæ sæ sæ sæ sæææælaaaaarrrrr!
»
25.06.2008 18:07:52 / tímon
Hótel mamma klikkar ekki, get gengið að því vísu að bæði tölvan hér og netið virkar annað en hjá mér. Netið liggur niðri í blokkinni, er verið að laga það og tölvan mín er í dái þarf að láta "strauja" kvikindið ekki það að maður sé eitthvað að hanga í tölvunni á sumrin eeeen semsagt það verður ekkert blogg fyrr en kvikindið fer að vakna úr dái nema eitthvað svaka merkilegt gerist eða ég ákveði að eiga mér svo ekkert líf að ég fari að hanga heima hjá öðrum að blogga. .. ....uuujá látum þetta duga later on! Sæææælllllaaaaarrrr!!!!!!!!!
»
09.05.2008 17:22:40 / tímon
Við fórum á árshátið hjá Vínbúðinni um daginn ég og Björgvin og kjellinn bauð á Hilton hótelið sem var crazyflott ég held ég hafi aldrei lent í öðru eins... Þetta var ferlega kósý. Örn Árna var veislusjóri og Sniglabandið var þarna með ball í lokin, uuu já ég hélt barasta að Sniglabandið væri löngu dáið en jæja. Við sóttum um stúdentaíbúð hér í Keflavík í nýju blokkunum við hliðina á Samkaup í mars og lentum á biðlista sem hljómaði svolítið þungur, en ég hugsaði æ það er fínt að hafa góðan fyrirvara bara, við fáum örugglega ekki íbúð fyrr en í ágúst í fyrsta lagi eða ekki fyrr en næsta sumar. Svo kíkti ég á skrifstofuna hjá þeim í vikunni til að athuga hversu aftarlega á listanum við værum...og þá sagði kallinn "þið eruð næst, fáið afhent í júní" og ég hugsaði FOKK!  -uuu það eru nokkrir dagar í það ekki mánuðir eins og ég hélt og við erum ekki rassgat búin að safna neinu í búið  Hann lét mig fá lykil af alveg eins íbúð sem var tóm svo við gætum allavegana skoðað hana, sem var ágætt því ég vissi ekki einu sinni hvernig þetta liti út. En svona er það...  Eldhús Baðherbergi Baðherbergi  Stofan Svefnherbergið og Björgvin að mæla eitthvað. Hm, held þetta sé bara ágætt. Þetta er allavegana nýtt og snyrtilegt enda fokkdýrt afsakið orðavalið. Hvernig lýst ykkur á?
»
21.04.2008 03:15:37 / tímon
Ég er búin að komast að því að ég kann ekki að vera á vinnumarkaðnum, það eru alltaf allir að læra heima og eitthvað vesen þegar ég er í fríi og svo verður mér ekkert úr verki! Ég var tildæmis að kára að vinna áðan (rétt yfir kl.01.00) og næ mér ekki niður til að fara að sofa og auðvitað eru allir sofandi núna því jú það er mið nótt!! Ef ég væri í skólanum væri ég löööngu farin að sofa!! Loksins leið sá tími sem ég mátti sækja um í skólann fyrir haustið og valdi allskonar skemmtilegt sjitt eins og hönnun, nýsköpun, íslenskar bókmenntir, auðvitað enn meiri dönsku og eitthvað svona drasl sem ég þarf samt tæknilega ekkert á að halda vei vei vei  Vá ég get ekki beeeðið eftir haustinu....eða þangað til í ágúst því þá ætlum við Björgvin til útlanda í marga marga daga Hundurinn er orðin algjör hlussa, alveg 24 kíló en samt svo sætur að maður vill halda á honum og knúsa hann en það er bara pínu erfitt núna því hann er svo þungur  Svo held ég að honum finnist það ekkert alltof þægilegt heldur... Það er samt ennþá smá stríð á milli kattarins og hundsins, hundurinn er alltaf að hrekkja köttinn því hann er heyrnalaus og blindur á öðru auganu þannig að það er svo auðvelt að bregða honum. En svo tekur kisa sín móment þar sem hundurinn er að skíta í sig af hræðslu. Eins og um daginn var mamma að sjóða fisk handa kisu, svo þegar hann var kominn í matadallinn hennar hámaði hún fiskinn í sig, og hundurinn var eitthvað forvitinn og þefaði af fisknum hennar, og hún var svo pirruð að hún kvæsti á hann geðveikt mikið með fullann munn af fisk svo að það skvettist alveg fiskur í andlitið á hundinum. Ég held hann hafi aldrei orðið eins hræddur greyið. Annars bauð Björgvin mér á "lokasýningu" á leikritið Bærinn breiðir úr sér (held ég að þaðheiti) þar sem Árni bæjarstjóri lék sjálfan sig hehe það var algjör snilld! Það verður víst eitthvað fjallað um þetta í næsta Séð og heyrt og út af því var eitthvað verið að hvísla um að halda eina sýningu í viðbót um helgina. Ef þið eruð ekki búin að sjá þetta ættuð þið að kíkja ef það verður aukasýning  Þetta er ótrúlega skemmtilegt  Ég held ég fari að horfa á Sex and the city í milljónasta skiptið þangað til ég sofna, ég eeelzka þessa þætti! Mí lækííí   ..Að lokum, hvað er málið með að gefa aldrei stefnuljós út úr öllum þessum hringtorgum hérna??? Later on!
»
27.03.2008 02:24:40 / tímon
Það er allavegana lægð yfir blogginu, en síðan mín er búin að vera biluð þannig að ég hef ekki getað sett neitt hér inn á. En það er nú hellings búið að gerast síðan síðast, þarf eigilega að finna myndir af því öllu.... .. Fór í flugskóla í Bretlandi, er núna bara í verklegu námi hjá Mile High Club ! Björgvin nýtti tíman á meðan ég var úti og fékk vinnu á skemmtiferðaskipi, tók einn túr
 Hí hí, eða bara við fórum í ammæli hjá Svaný (sem ég var að vinna með í Zara í Smáralind) helgina fyrir öskudaginn og það var búningaþema og geggjað gaman. Fullt af furðufuglum sem komu í afmælð, m.a goth, playboy kanína, prestur, api, hjúkka, FBI kona og svo auðvitað drakúla.
Við fjölskyldan fengum okkur hund, hann heitir Mikki og er ýkt sætur súkkulaðibrúnn hreinræktaður Labrador.
 Hann kann auðvitað að heilsa  Ekki nóg með það að ég hafi keypt mér nýjan bíl (Boing -því maður tekur lágflugið á honum með Pilot sólgleraugum) heldur seldi ég þann gamla (Tobbu/pussy wagon) líka á uppsprengdu verði og náði að greiða niður part (já takið eftir PART!!!) af tannlæknareikningnum mínum fyrir andverði gamla bílsins jáá sæælll! Ekki það að bíllin hafi verði ódýr ónei heldur er bara tannsi orðin helvíti dýr....og nei ég er ekki með blussandi holur í tönnunum heldur er búin að vera í tannréttinum.
Var reyndar ekki alveg nógu sátt með kaupin á bílnum því Boing átti víst að vera á vetrardekkjum sem hann var ekki baun í bala á, en ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því fyrr en ég lenti í smá bílslysi á Reykjanesbrautinni á leiðinni í vinnuna einn morguninn. Ég missti bílinn út af ÖFUGU MEGIN og rétt slapp með að keyra á tvo bíla sem voru að koma á móti mér á 80 km hraða sjitt hvað ég var hrædd. Minns fór í staðin einhverja metra út í hraun á hlið niður einhverja brekku á móti umferð og stoppaði þar. En ég slapp og Boing líka, bara ein felga beigluð eftir allt hraunið, snjórinn veitti mjúka lendingu Þarf að setja mynd af Boing hér inn, ýkt sætur bíll..... Svo er ég búin að vera að vinna í tískuvöruversluninni Zara í Smáralind síðustu mánuðina, er reyndar hætt þar núna því ég fékk það skemmtilega starf hér í Keflavík að vera aðstoðar-verslunarstjóri á veitingahúsi Ætla svo að drulla mér aftur í skóla í haust, en vá hvað það er búið að vera næs að vinna í eina önn eftir útskriftina! Æ fíl gud dununununu nunu!
Bara bing bara bung sælar....
»
10.01.2008 23:58:46 / tímon
SÆLINÚ! Það er eitthvað vesen með nettengingunar hérna heima þannig að netið er búið að liggja niðri síðan sautjánhundruð og súrkál, og svo erum við að flytja um helgina þannig að ég verð ekki með neitt net á næstunni kem bara með góðan annál fyrir árið 2007 í Febrúar í staðin jú það er hægt að segja að þetta hafi verið viðburðarríkt ár! GLEÐILEGT NÝTT ÁR og takk fyrir stundirnar á því "gamla"  Bara bing, bara búng, sæææælaaaarrr!!!
»
24.12.2007 02:57:00 / tímon
Já það er heldur betur búið að vera nóg að gera, við erum að flytja á milli jóla og nýárs (innanbæjar), mamma og Stebbi fjárfestu í c.a 250 fermetra húsi...75 fermetrarnir voru LÖNGU of lítð pláss fyrir okkur öll því okkur fjölgar í nýju fjölskyldunni. Stebbi á tvö börn og einn tengdason og svo erum það við þrjár systurnar sem búum enn hjá mömmu og einn tengdasonur uuuu það gera 9 manna fjölskyldu (með tengdasonum) nú og svo er aldrei að vita hvenar Þóra Lísa kemur heim frá Noregi :þ sem betur fer er þetta hús á tveimur hæðum og inniheldur 2 íbúðir svo að er hægt að fara í bað, þvo þvott og poppa á tveimur stöðum í einu!! Geggjað Nú er málið að mála og pakka saman tveimur búslóðum og flytja inn í nýja húsið. Svo útskrifaðist ég 20.desember og hélt upp á það um helgina með tvítugsafmæli inniföldu, bollu, jólabjór, smá nasli ofl. Þetta var meergjað ... já Marta 2 lítrar af bollu til spillis hvað?! Pay-back eða? Næst já um áramótin verður synt í bollu og ekkert rugl hehe! En já, Heiða toppaði alla hvað varðar afmælisgjöf og ákvað að eignast litla stelpu á afmælisdaginn minn takk fyrir Heiða þú ert algjört æði  Ég óska ykkur gleðilegra jóla, þakka fyrir það liðna, og vona að þið hafið það gott um jólin krúttin mín...gangið hægt um gleðinnar dyr! Sæ sæ sæ sæ sæææælaaaaaarrrrrrr! Kveðja Hanna Rúna Kristínardóttir. P.S Það var eitthvað ryk-korn að flækjast fyrir á myndinni og stækkaði geð veikt við flassið, þetta er ekki blettur í kjólnum! 

»
01.12.2007 20:18:28 / tímon
Jahá. Þá er önnin búin, maður er eigilega bara búinn á því! Síðasta vikan í skólanum var svona reddingur út í eitt. Lokaverkefnaskil á hlaupum og aukatímar í íþróttum til að bæta upp fjarvistir. Við vorum nú ekki alveg sammála um það ég og íþróttakennarinn um tölu fjarvistana en vorum sammála um að ég myndi bara mæta í alla íþróttatíma og hægt væri í vikunni og þá væri þetta bara komið. Erfiðasti dagurinn var þriðjudagurinn; Ég fór í útihlaup um kl.13, svo beint í magaæfingapróf, liðleikapróf, sundtími og svo aftur útihlaup og þá var klukkan orðin um 17.00. Hina dagana slapp ég með tvö útihlaup á dag... Nú svo var komið að dimmeteringunni sem byrjaði á hittingi að miðnætti á fimmtudagskvöldið, og svo var farið í að vekja kennarana um 3 leitið. Það var mjög skrautlegt! Þegar við ætluðum að vekja Hauk Ægis náttúrufræðikennara komum við að þríbýli ...o-ó!! Já við fórum auðvitað tvisvar á vitlausa hurð áður en við fundum íbúðina hans og vöktum nágranna hans með trommum og öskrum...sem hótuðu að kæra þetta ónæði hehe!!! Vá hvað það var fyndið. Nú svo enduðum við auðvitað í morgunkaffi hjá Besta kennara skólans, Rósu dönskukennara kl.5 um morguninn og fengum heitt súkkulaði og brauð í kósístund enda er hún Rósa algjört yndi. Þaðan fórum við svo heim og fórum í búningana okkar þar sem við vorum með Ofurhetjuþema. Í skólann vorum við mætt kl.7 og rugluðum borðauppröðuninni í öllum stofunum áður en kennslan byrjaði. Svo buðu Ingurnar í mötuneytinu okkur í brauð, djús og kökur á meðan fyrsti tíminn var að byrja. Rétt eftir að kennslan var byrjum vorum við mætt með gettóblasterinn með hetjulögum í botni og trufluðum flestar kennslustundir til að minna á dimmisjón á sal kl.9. Þar sýndum við myndirnar síðan í vakningunni um nóttina, myndbandið fræaga og veittum allskyns verðlaun til kennara og starfsfólks. Um kvöldið var svo síðasta kvöldmáltíðin þar sem við útskriftanemarnir fengum að kveðja kennarana og starfsólkið. Fengum geggjaðan mat og tvo frábæra trúbadora sem héldu uppi stuðinu  Ég veit ekki hvað ég var búin að vera vakandi í marga klukkutíma þegar ég fór að sofa í gær, fyrsta sem ég sagði þegar ég vaknaði í dag, var þegar ég spurði Björgvin hvaða dagur væri í dag hehe Maður er bara hálf vankaður eftir þetta. Hér eru myndir af dimmeteringunni frá Ingu held ég : http://wwww.123.is/album/display.aspx?fn=frigid&aid=740143 og myndir af fss vefnum : http://www.fss.is/myndasafn/album/34/page1 ooog myndbandið fræga er á þessari síðu : http://www.123.is/pretzel/ Er farin að tjilla! Sællllarrrr
»
11.11.2007 17:27:07 / tímon
Auðvitað eins og á haustin minni ég á jólasíðu Júlla... slóðin er www.jullur.is ..nei grín það er http://www.julli.is/jolavefur.htm það er alveg niðurtalning í sekúndum þar og læti. Talandi um niðurtalningu, þá eru nú ekki nema 13 skóladagar eftir wow hversu stressandi það hljómar. Mér finnst svo stutt síðan önnin byrjaði, maður er búin að hanga inni í allt fjandans haust út af því að það er búið að vera úrhelli ringning hérna, það er stundum bið eftir því að setja skóna sína á ofninn í forstofunni. Svo fann ég lausnina; gömlu góðu GÚMMÍTÚTTURNAR!! Auðvitað maður, það eru meira að segja til tvö pör af þeim hérna Annars varð ég fyrir óskemmtilegri reynslu um daginn. Ég heyrði og sá blossa af eldingu í fyrsta skiptið, og engin smá hjúts elding líka! Ég og Árný Sif vorum vakandi, en Ingunn Embla sofnuð og mamma ekki heima svo að við hringdum í mömmu og spurðum hvort það gæti verið að flugvél hafi hrapað já hlæ hlæ... en ég var skíthrædd! Rafmagnið fór af og allt í steik...það endaði með því að Árný Sif gysti uppí hjá mér Eins og þegar ég fann jarðskjálfta í fyrsta skiptið í vor, ég hélt ég væri að verða klikkuð því ekkert annað í herberginu mínu titraði nema rúmið og gólfið. Annars gengur ágætlega í skólanum, en ég er búin að fá vinnu í desember við að skeina og mata lítil peð á leikskóla á milli prófanna. Haustið er búið að vera svona skemmtilegt innihang vegna veðurs og leti, enda er ég orðin sérfræðingur í að bora í nef og búa til kúlur. Ef veðrinu fer ekki að linna geri ég eins og kallin í Law&Order um daginn. Hann var einu sinni laminn á leiðinni í vinnunna svo að hann ákvað að fara aldrei aftur út úr húsi, stofnaði fyrirtæki og vann bara í gegnum netið heima hjá sér, og allt sem honum vantaði annað gat hann bara pantað á netinu og látið senda sér heim t.d mat og dót. Aha sniðugt Hei annars var ég að pæla, hafa aldrei verið til leikfangaverslanir á Íslandi áður? Það er nebbla eitthvað klikkað lið sem er að mæta í þessar nýju leikfangaverslanir mörgum klukkutímum fyrir opnum í RÖÐ! Hvað á það eigilega að þýða. Þetta er allt í lagi fólk, þið þurfið ekkert að gefa mér dót í jólagjöf, bara kerti eða eitthvað .. Komin tími á að búa til kúlur, later on sæææælllllaaaaaaarrrrrrrr!!
»
17.10.2007 16:11:44 / tímon
Ég held annaðhvort að ég þjáist af ritstíflu, eða lifi geðveikt óspennendi lífi...er ekki með neitt spennanedi til að setja hérna inn -frá mér allavegna. Hinsvegar fann ég svolítið áhugaverða frétt... Hægt að þekja vegakerfi Íslands fimm sinnum með dagblöðum og auglýsingapósti Ársskammtur Íslendinga af dagblöðum og auglýsingapósti dugar til þess að þekja vegakerfi landsins rúmlega fimm sinnum. Að meðaltali berast 176 kg. af dagblaðapappír og auglýsingapósti berast inn á hvert heimili í landinu og er það 76% meira magn en barst inn á heimilin árið 2003. Þetta var rætt á stjórnarfundi Sorpu í dag og kemur fram á bloggsíðu Björns Inga Hrafnssonar, formanns borgarráðs.Á vefsíðu Björns Inga segir að Fenúr, sem er fagráð um endurnýtingu og úrgang, hafi staðið fyrir rannsókn á síðasta ári, þar sem 17 heimili víðs vegar um landið tóku þátt í mælingum á magni pappírs sem berst inn um póstlúgur landsmanna. Til samanburðar er samskonar könnun sem gerð var árið 2003.Í rannsókninni kom fram að árlega berist inn á íslensk heimili 32 kg. af auglýsingapósti en 144 kg. af dagblöðum. Fyrir fjórum árum var þetta magn umtalsvert minna, eða 100 kg. af pappír á hvert heimili, þar af 19 kg. af auglýsingapósti eða s.k. frípósti. Sorpa lætur vinna rannsóknir árlega á sorpi því sem fellur til á heimilum höfuðborgarsvæðisins. Í fyrra er talið að dagblöð og tímarit hafi verið um 27% þess sem endaði í heimilissorpi höfuðborgarbúa, en árið 2003 var hlutfallið um 15%. Á sama tíma hefur endurvinnsla þeirra aukist úr 5.188 tonnum í 8.400 tonn á starfssvæði fyrirtækisins, eða um 62%. Segir á vefsíðu Björns Inga að pappírnyum fylgi umtalsverður kostnaður fyrir sveitarfélögin og sem hafi vaxið mjög á undanförnum árum, ekki síst fyrir tilstilli nýrra fríblaða sem dreift er í hvert hús. LaterOn, sæsæsæsæsæsææællaaaarrr!
»
25.09.2007 21:38:46 / tímon
Jæja þetta gengur ekki lengur ég er búin að vera alltof bitur út í bloggkerfið síðan ég gat ekki bloggað nokkra daga í röð um daginn...það er svosem ekkert búið að ské merkilegt sem var ómissandi að setja hérna inn. Mánaðarins: ...Ég skráði mig í áskorendakeppni hjá Lífsstíl, ef ég vinn hana fæ ég frítt far til útlanda með Icelandair en stefnan er nú reyndar bara á að komast í betra form. Breytingar á mataræði gengur vel en það er önnur saga með fjördjúsið...þarf að fara að finna upp og brugga hollt og gott svoleiðis þá byrjar fjörið fyrst! ....Okkur "fjölgaði" í hérna heima, Kolla vinkona mömmu býr hjá okkur í mánuð, er reyndar búsett í Svíþjóð en það er önnur saga..... Ég týndi bensíntappanum á bílnum mínum um daginn já og ekki spurja hvernig ég fór á því!! Bíð eftir því að bensínið sullist út um allt þar sem bensínlokið hefur frjálsan vilja og er oftast opið, og svo "verð" ég að taka beygjurnar á ferðinni svo að stýrið í bílnum breytist ekki í eitthvað verra en vöðvastýri. Sjæse. Er búin að finna ansi margar skemmtilegar uppfinningar með myndavélina mína í áfanganum Stafræn ljósmyndun hjá Braga kallinum Mér skilst að hápunktur áfangans sé á morgun þar sem við heimsækjum Oddgeir Karlsson ljósmyndara í stúdíóið hans. En hérna eru nokkrar tilraunir sem ég gerði í vikunni á sjálfri mér og eyrnatólunum...  
Sæsæsæsæsæææælllaaaarrrr!
»
10.09.2007 00:58:31 / tímon
Þetta er endalaust fyndið, get ekki hætt að hlægja af þessu! 
»
09.09.2007 21:39:40 / tímon
vá fallega dæmið ég er búin að vera að reynað blogga hérna en það fer bara til helvítis og engin færsla kemur, týnast bara vonandi að þetta virki. Nokkrar myndir af busadeginum sem við útskriftanemarnir skemmtum okkur við að plana ...  Snuð með lýsi á, að sjá liðið!  allir fengu að kyssa fiskinn ...og slökkviliðið fékk að bleyta liðið aðeins!
»
21.08.2007 13:39:13 / tímon
Loksins að við hættum að vinna ég og Björgvin og fórum í smá ferðalag áður en skólinn byrjaði. Lögðum af stað á miðvikudaginn í síðustu viku og stefnan var nú að fara bara á Flúðir en þar sem það er 30ára aldurstakmark á tjaldsvæðið var ákveðið að fara í Þjórsádalinn. We got wild hehe vissum ekkert hvar við vorum á tímabili, keyrðum í klukkutíma á einhverju sem ekki er hægt að kalla vegur, í kringum eitt fjall, sáum Búrfellsvirkjun og hefðum örugglega endað á Kárahnjúka eða eitthvað ef við hefðum ekki fundið leiðina til baka. En svo fundum við tjaldsvæðið í Þjórsádal. En þar sem það er "AÐEINS FYRIR FJÖLSKYLDUFÓLK" Með stórum, rauðum stöfum fórum við bara í Hraunborgir og fengum að gista í bústaðnum hjá Dodda og Kollu...þvílík tilviljun að þau voru þar. En já þetta voru því 300km akstur til einsins, og við vorum orðin dauðþreytt enda búin að hlægja svo mikið af sjálfum okkur að ég var farin að grenja úr hlátri hehe þvílík geðshræring maður Eftir nokkur glös af rósavíni og bjóra var geggjað að geta hent sér í rúm ekki vindsæng, enda vöknuðum við ágætlega endurnærð daginn eftir. Nú þá var ferðinni heitið á Laugarvatn, en fyrst að við vorum ekki 30 ára máttum við ekki gista þar heldur, og ekki í Laugarás eða hvað það hét. Allt þetta fannst okkur nú bara fyndið en þetta var orðið svolítið þreyttur brandari. En það sem toppaði þetta allt saman var að konan á tjaldsvæðinu á Laugarvatni sagði okkur að það væri ekki nema 25 ára aldurstakmark á tjaldsvæðinu í Úthlíð. En við erum ekki heldur orðin 25ára þannig að við fórum ekki þangað, en það sem mér fannst alveg fáránlegt við það er að við fórum vinahópurinn þangað um páskana, og ég var ábyrgðarmaður fyrir tveimur sumarbústöðum þar...og ég mátti það þrátt fyrir að vera á 20.árinu!??? ...uuu afhverju má ég þá ekki tjalda einu fokking tjaldi þar? skondinn skítur. Þeim er greinilega meira annt um tjaldsvæðið sitt heldur en bústaðina En vá hvað það yrði allt vitlaust ef maður myndi vera með tjaldsvæði sem væri AÐEINS FYRIR 29 ÁRA OG YNGRI OG/EÐA EINSTAKLINGA OG PÖR! hehe Við hringdum bara á Þingvelli, og viti menn við vorum bara velkomin þangað Vúhú, tjaldinu loksins hennt upp öllari opnaður og sumarfríið byrjað. Við komumst að mörgu skrítnu í ferðalaginu, m.a að sundlaugin á Laugarvatni er opin frá kl.17-20 á sumrin -í heila þrjá tíma!! Túrinstar sjá greinilega illa í myrkri, sama hversu dimmt eða ekki dimmt var á nóttunni var liðið með einhver vasaljós út um allt. Heiðrún (stærsta vínbúð landsins) er ekki eins stór og við héldum, það eru til hnífapör sem lýsa í myrkri, flugur eru greinilega graðastar í ágúst því það voru flugnapör út um allt á tjaldinu okkar í doggy leit illa út, eins og þetta væri einhver swinger club eða eitthvað!!! En svo var þetta orðið ágætt á laugardeginum, brunuðum heim og fórum á fyllerí heima hjá mér og svo Pólverjadjamm hér i Keflavík þar sem allir íslendingarnir í Keflavík voru greinilega á Menninganótt. Eins og það er alltaf gaman að fara í ferðalag er alltaf jafn gott að koma heim. Svo byrjaði skólinn í gær, fékk fara frábæra stundatöflu 23 einingar og útskrifast 20.desember VeiVei! Læt þetta gott heita í bili, ssæææælllaaarrr!
»
01.08.2007 00:28:50 / tímon
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Heimsóknir
Í dag: 8 Alls: 36933
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
|